Hvað er Kerfisstjórn?
Kerfisstjórn er stjórnstöðin þín fyrir aðgang notenda, öryggi og tengingar við önnur kerfi. Hér ákveður þú hverjir hafa aðgang að kerfinu og hvaða réttindi þeir hafa. Þú getur líka fylgst með aðgerðum notenda, stillt API lykla fyrir ytri tengingar og kveikt á tengingum við önnur kerfi.
Líta má á Kerfisstjórn sem miðstöð öryggis og aðgangs. Þar stjórna kerfisstjórar því hverjir geta notað Manor, hvað þeir mega gera og hvernig ytri kerfi tengjast Manor.
Aðgangur að Kerfisstjórn
Smelltu á Kerfisstjórn í aðalvalmyndinni. Á yfirlitssíðunni sjást allir eiginleikar kerfisstjórnar:

Eiginleikar Kerfisstjórnar
Notendur
Notendur eru þeir sem nota kerfið fyrir hönd stofunnar. Hver notandi fær eitt eða fleiri hlutverk sem veita honum aðgang að afmörkuðum hluta kerfisins.
Stjórnaðu því hverjir hafa aðgang að Manor:
- Bættu nýjum notendum við kerfið
- Stofnaðu sérstaka kerfisnotendur fyrir ytri API tengingar
- Úthlutaðu hlutverkum til að stýra aðgangi notenda
- Breyttu notendaupplýsingum
- Gerðu notendur óvirka þegar þeir þurfa ekki lengur aðgang
- Stýrðu grunnréttindum notenda með hlutverkum
Aðgangur: Smelltu á hnappinn Notendur til að sýsla með notendareikninga og aðgang.
Nánari upplýsingar: Sjá Notendur og Kerfisnotendur fyrir ítarlegar leiðbeiningar um notendastjórnun.
Hlutverk
Notendur fá réttindi sín í gegnum hlutverkin sem þeim er úthlutað. Hægt er að búa til ný hlutverk, sérsniðin að þörfum stofunnar, til að stýra aðgangi nákvæmlega.
Skilgreindu og stjórnaðu réttindum innan stofunnar:
- Skoðaðu innbyggðu hlutverkin
- Búðu til sérsniðin hlutverk fyrir þarfir einstakra teyma
- Úthlutaðu hlutverkum nákvæmum réttindum
- Stýrðu aðgangi að eiginleikum og gögnum eftir hlutverkum
- Veittu eða takmarkaðu aðgang að tilteknum hlutum kerfisins og aðgerðum
Aðgangur: Smelltu á hnappinn Hlutverk til að sýsla með hlutverk og réttindi.
Nánari upplýsingar: Sjá Hlutverk notenda og Sérsniðin hlutverk fyrir ítarlegar leiðbeiningar um hlutverk.
Aðgerðaskrá
Skrá yfir allar aðgerðir sem notendur hafa framkvæmt, með ítarlegum upplýsingum um hverja beiðni.
Fylgstu með og endurskoðaðu allt sem notendur gera í kerfinu:
- Skoðaðu allar aðgerðir og breytingar notenda
- Sjáðu hver gerði breytingar og hvenær
- Leitaðu og síaðu aðgerðir eftir notanda, aðgerð eða dagsetningu
- Opnaðu færslu til að sjá nákvæmlega hvaða svæði og gildi breyttust
- Áttaðu þig á notkunarmynstri kerfisins
- Gakktu úr skugga um að farið sé að reglum og öryggi sé tryggt
Aðgangur: Smelltu á hnappinn Aðgerðaskrá til að skoða ítarlega virkni í kerfinu.
Nánari upplýsingar: Sjá Aðgerðaskrá og endurskoðun beiðna fyrir ítarlegar leiðbeiningar um aðgerðaskrána og skoðun einstakra beiðna.
API lyklar
API lyklar eru notaðir í sérsmíðaðar tengingar við önnur kerfi og þjónustur.
Veittu ytri forritum aðgang að Manor í gegnum API:
- Stofnaðu API lykla fyrir tengingar við önnur kerfi
- Hafðu umsjón með öryggi API lykla og endurnýjun þeirra
- Veittu tiltekin API réttindi í gegnum tengda kerfisnotendur
- Tengdu forrit frá þriðju aðilum við Manor
- Gerðu gagnaskipti við önnur kerfi sjálfvirk
Aðgangur: Smelltu á hnappinn API lyklar til að sýsla með API auðkenningu.
Nánari upplýsingar: Sjá API lyklar fyrir ítarlegar leiðbeiningar um API lykla.
Tengingar
Hér má kveikja og slökkva á tengingum við ýmis kerfi.
Stjórnaðu tengingum milli Manor og annarra viðskiptakerfa:
- Kveiktu eða slökktu á tilteknum tengingum
- Stilltu tengingar
- Stýrðu því hvaða gögnum er deilt með ytri kerfum
- Hafðu umsjón með tengingum við þjónustur þriðju aðila
- Fylgstu með ástandi og stöðu tenginga
Aðgangur: Smelltu á hnappinn Tengingar til að sýsla með tengingar við önnur kerfi.
Nánari upplýsingar: Sjá Tengingar fyrir ítarlegar leiðbeiningar um uppsetningu tenginga.
Góðar venjur
Skipuleggðu hlutverkin fyrirfram
Áður en þú stofnar notendur skaltu ákveða hvaða hlutverk stofan þín þarf. Flokkaðu réttindi á rökréttan hátt svo hvert hlutverk henti tilteknu teymi eða starfi.
Hafðu aðgangsstýringu stranga
Fylgdu reglunni um lágmarksréttindi (e. least privilege): veittu notendum aðeins þann aðgang sem þeir þurfa til að sinna starfi sínu. Notaðu sérsniðin hlutverk til að setja saman afmörkuð réttindi.
Fylgstu reglulega með aðgerðum
Skoðaðu aðgerðaskrána reglulega til að koma auga á óheimilar breytingar eða misnotkun. Hún er endurskoðunarslóðin þín og nýtist bæði við að fylgja reglum og tryggja öryggi.
Farðu varlega með API lykla
API lyklar veita víðtækan aðgang. Geymdu þá á öruggum stað, endurnýjaðu þá reglulega og stofnaðu aðeins lykla sem eru raunverulega í notkun. Afturkallaðu gamla eða óþarfa lykla.
Skráðu hvernig réttindum er háttað
Skráðu hvaða hlutverk hafa hvaða réttindi og hvers vegna. Það auðveldar móttöku nýrra starfsmanna og viðhald öryggis.
Kveiktu á öryggistengingum
Ef stofan þín notar innskráningu í eina gátt (SSO) eða önnur öryggisverkfæri skaltu kveikja á viðeigandi tengingum til að einfalda aðgangsstýringu.
Tengt efni
- Notendur: Sýslaðu með notendareikninga starfsfólks
- Kerfisnotendur: Sýslaðu með þjónustureikninga fyrir tengingar
- Hlutverk: Stýrðu réttindum og aðgangi
- Aðgerðaskrá: Fylgstu með virkni í kerfinu og skoðaðu einstakar beiðnir
- API lyklar: Tengdu ytri kerfi
- Tengingar: Tengdu Manor við aðrar þjónustur