Samstilling dagatala

Samstilling dagatala tengir Manor við ytri þjónustur, þ.e. dagskrá dómstóla, Google og Microsoft Office 365, og býr til tekjutillögur úr virkni í ytri dagatölum og tölvupósti. Farið er yfir hvernig hver tenging er sett upp, hvernig dagatöl til samstillingar eru valin og hvaða takmarkanir gilda.

Síðast uppfært

Hvað er samstilling dagatala?

Samstilling dagatala tengir Manor við ytri dagatalsþjónustur þínar. Tengingarnar skrá virkni þína og búa sjálfkrafa til tekjutillögur (tillögur að tímaskráningum) í Manor. Tekjutillögur eru skrá yfir vinnuna þína sem þú getur breytt í reikningshæfan tíma. Þannig heldurðu betur utan um vinnu sem fer fram á mismunandi stöðum.

Tengingarnar við Google og Microsoft Office 365 eru tvíátta. Þær sækja virkni úr ytra dagatalinu þínu inn í Manor sem tekjutillögur og senda líka viðburðina sem þú stofnar í Manor út í dagatal í Outlook eða Google Calendar. Þessi grein fjallar um hvernig aðgangar eru tengdir og hvernig virkni er sótt inn í Manor sem tekjutillögur. Um hina áttina, frá Manor út í ytra dagatal, er fjallað í greininni Samstilling Manor viðburða við Outlook eða Gmail.

Af hverju skiptir samstilling dagatala máli?

Með tengingu við ytri dagatalsþjónustur geturðu:

Tengingar opnaðar

Til að setja upp tengingar:

  1. Opnaðu Notendasnið úr notendavalmyndinni.

  2. Smelltu á Tengingar.

    Síðan Tengingar sýnir tiltækar tengingar: Dagskrá dómstóla, Microsoft Office 365 og Google

  3. Listi yfir tiltækar tengingar birtist. Smelltu á Tengjast við þá þjónustu sem þú vilt nota.

Tengingar í boði

Þrjár tengingar eru í boði sem skrá vinnuna þína og búa til tekjutillögur.

Hver tenging birtist sem spjald með stuttri lýsingu, tenglinum Sjáðu hvernig tengingin virkar og hnappinum Tengjast.

Dagskrá dómstóla

Tengdu Manor við dagskrá dómstóla svo viðburðir í dómsal birtist sjálfkrafa í dagatalinu.

Til að tengjast:

  1. Á síðunni Tengingar smellirðu á Tengjast við Dagskrá dómstóla.

  2. Sláðu inn nafnið þitt í reitinn Nafn í glugganum sem opnast. Reiturinn er skyldureitur og Manor notar nafnið til að finna mál sem þú flytur í dagskrám dómstóla.

  3. Smelltu á Vista.

    Glugginn Dagskrá dómstóla með skyldureitnum Nafn og hnappinum Vista

Google

Tengdu Google reikninginn þinn við Manor og fáðu tillögur að tímaskráningum sem byggja á því sem þú gerir í Gmail og Calendar.

Til að tengjast:

  1. Á síðunni Tengingar smellirðu á Tengjast við Google.
  2. Skráðu þig inn með Google-reikningnum þínum og veittu Manor þann aðgang sem beðið er um.

Microsoft Office 365

Með því að tengjast Office 365 færðu tillögur að tímaskráningum sem byggjast á Outlook notkun.

Til að tengjast:

  1. Á síðunni Tengingar smellirðu á Tengjast við Microsoft Office 365.
  2. Skráðu þig inn með Microsoft-reikningnum þínum og veittu Manor þann aðgang sem beðið er um.

Að velja hvaða dagatöl á að samstilla

Þegar Google- eða Office 365-reikningur hefur verið tengdur opnarðu tenginguna aftur (Notendasnið → Tengingar → spjald tengingarinnar) til að velja hvaða dagatöl eru notuð:

Þar sem tengingarnar eru tvíátta stjórna sömu stillingar líka hinni áttinni: Manor-viðburðir eru skrifaðir í Manor dagatal sem þú velur og birtast því sjálfkrafa í Outlook eða Google Calendar. Ekki þarf að stilla neitt tímabil eða tímaáætlun. Tengingin er virk allan tímann og Manor les og skrifar breytingar eftir þörfum.

Í greininni Samstilling Manor viðburða við Outlook eða Gmail er farið nánar yfir skrefin, virkni samstillingarinnar og takmarkanir þegar viðburðir eru sendir frá Manor út í ytra dagatal.

Takmarkanir

Tengdar greinar