Skipurit

Skipurit í Stjórnun gerir þér kleift að skipta fyrirtækinu upp í deildir og undirdeildir. Þar er hægt að skoða yfirlitstöflu, stofna, breyta og eyða deildum, úthluta deildarstjórum og starfsmönnum og velja heiti á einingum í hverju lagi skipuritsins.

Síðast uppfært

Á síðunni Skipurit skiptir þú fyrirtækinu upp í deildir og undirdeildir eftir skipulagi þess. Þegar starfsmönnum hefur verið raðað í einingar er hægt að gera skýrslur eftir deildum, skipuleggja mannafla og greina bókhald eftir einingum.

Af hverju skipurit skiptir máli

Með því að skipta fyrirtækinu upp í deildir geturðu:

Aðgangur að skipuriti

Til að opna skipuritið:

  1. Smelltu á Stjórnun í aðalvalmyndinni til vinstri.
  2. Veldu Skipurit.

Síðan Skipurit í Stjórnun með töflu yfir fyrirtæki og deildir og hnappinum Stofna deild

Yfirlitstafla skipurits

Í töflunni birtast fyrirtæki og deildir í réttri röð eftir skipuritinu. Hver lína sýnir:

Við hliðina á nafni fyrirtækis er tengillinn Orðalag í skipuriti. Þar stillirðu hvaða heiti fyrirtækið notar yfir einingar.

Að stofna deild

Til að stofna deild:

  1. Smelltu á Stofna deild á síðunni Skipurit.
  2. Fylltu út formið:
    • Nafn (áskilið): Nafn deildarinnar, til dæmis Málflutningur, Ráðgjöf eða Fyrirtækjaráðgjöf.
    • Staðsetning í skipuriti (áskilið): Veldu fyrirtækið eða yfirdeildina sem nýja deildin á að heyra undir. Þessi reitur ræður því hvar deildin lendir í skipuritinu.
    • Deildarstjórar (valfrjálst): Veldu einn eða fleiri notendur sem deildarstjóra.
  3. Smelltu á Vista deild.

Formið Stofna deild með reitunum Nafn, Staðsetning í skipuriti og Deildarstjórar

Til að stofna undirdeild opnarðu fyrst yfirdeildina og smellir svo á Stofna deild þar. Þá er sú deild sjálfkrafa valin sem yfireining.

Upplýsingar um deild

Smelltu á nafn deildar í töflunni til að opna upplýsingasíðu hennar:

Upplýsingasíða deildar með yfirliti yfir deildina og lista yfir starfsmenn hennar

Á deildarsíðunni geturðu:

Breyta og eyða deild

Í forminu Breyta deild geturðu breytt Nafn, Staðsetning í skipuriti (yfireiningu deildarinnar) og Deildarstjórar. Reiturinn Stofnað sýnir hvenær deildin var stofnuð og er ekki hægt að breyta honum.

Formið Breyta deild með reitunum Nafn, Staðsetning í skipuriti, Stofnað og Deildarstjórar ásamt hnappinum Eyða deild

Í forminu er líka hnappurinn Eyða deild. Aðeins er hægt að eyða deild sem hefur hvorki starfsmenn né undirdeildir. Ef deildin hefur annað hvort þarftu fyrst að færa starfsmennina í aðra einingu og eyða undirdeildunum.

Stillingar á orðalagi

Þú getur valið þau heiti yfir skipulagseiningar sem fyrirtækið notar sjálft. Smelltu á Orðalag í skipuriti við hliðina á nafni fyrirtækisins í töflunni.

Glugginn Orðalag í skipuriti með heiti fyrir hvert lag skipuritsins

Í glugganum velurðu heiti fyrir hvert lag skipuritsins:

Fyrir hvert lag velurðu eitt af heitunum Deild, Svið, Teymi eða Hópur. Athugaðu að enska heitið Unit birtist í íslenska viðmótinu líka sem Deild, sama orð og fyrir Department. Valkostirnir eru því fimm en aðeins fjögur ólík heiti sjást á íslensku. Smelltu á Vista til að virkja heitin. Manor notar þau alls staðar þar sem vísað er í skipulagseiningu, til dæmis í töflunni Skipurit og í deildarreitnum í notendasniði.

Úthlutun starfsmanna á deildir

Starfsmenn eru skráðir í deild í gegnum notendasnið sitt:

  1. Farðu í Kerfisstjórn → Notendur.
  2. Opnaðu notandann sem á að skrá.
  3. Veldu deildina í reitnum Deild.
  4. Vistaðu notandann.

Hver starfsmaður tilheyrir einni aðaleiningu í einu.

Deildir í skýrslum og rekstri

Þegar skipuritið er tilbúið nýtist það víða í Manor:

Bestu venjur